Saga Hrímu

Um okkur

Saga Hrímu

Saga Hrímu hófst með tilraunum í eldhúsinu heima, þar var ísinn betrumbættur og nýjar aðferðir fundnar. Ferðir til nágrannalanda leiddi til þess að fatta að Ísland væri eitt af þeim fáu löndum sem fengu ekki að njóta þessa dýrindis eftirréttar.

Svo sirka um vetur 2025 var ákveðið að reyna á þetta og þar tóku vinirnir tveir þetta á sig. Við höfum fengið endalausa hjálp og erum ótrúlega þakklátir fyrir fólkið sem hjálpaði og smakkaði öll þau brögð sem komu fram.

Oft var vinnan erfið og gekk stundum hægt en eftir langan en skemmtilegan vetur er biðinni loksins lokið.

Hríma er mætt í frystinn hjá Pétursbúð!

Hvaðan kemur nafnið?

Nafnið Hríma er dregið af sagnorðinu að hríma. Að hríma er það að þekjast fínlegum frostkristöllum sem myndast þegar raki frýs á köldum yfirborði í algjörri kyrrð. Það lýsir þeim töfrum þegar náttúran skreytir sig hvítri, glitrandi skán sem er í senn stökk og fínleg.

Skoða bragðtegundir →